Tilbaka á næringarsíðu,

Prótein

Um 50% af rúmmáli beina og um þriðjungur af beinmassa er prótein.

Prótein er nauðsynlegt fyrir líkama okkar, þar sem það tekur þátt í vöðvauppbyggingu, ensím- og hormónavirkni. Sterkir vöðvar og góð hreyfifærni eru lykilatriði fyrir daglegt líf. Við fáum lífsnauðsynlegar amínósýrur úr fæðunni, en líkaminn getur framleitt aðrar sjálfur.

Ráðlagður dagskammtur

Mataræði Íslendinga er almennt próteinríkt, en sumir hópar, eins og eldra fólk, vannærðir og íþróttafólk, þurfa meira prótein. Þörfin er um 0,8-2g/kg á dag eftir aðstæðum. Mikilvægt er að fá prótein úr fjölbreyttum mat, en engin þörf er á nákvæmri mælingu – best er að hafa próteingjafa í flestum máltíðum. Eftirfarandi er einungis viðmið:

  • Fullorðið fólk (19-64 ára)

    0,8 g per kg
  • Eldra fólk (65+ ára)

    1,0-1,2 g per kg
  • Íþróttafólk

    1,2-1,6 g per kg
  • Fólk með beinþynningu

    1,0-1,2 g per kg
Næring
Hvaða fæðutegundir innihalda prótein?

Prótein er auðvelt að finna í bæði dýra- og plönturíkinu, og fjölbreytt mataræði tryggir næga neyslu.

Dýraafurðir

  • Kjöt
  • Fiskur
  • Egg
  • Mjólkurvörur (t.d. jógúrt, skyr, ostur)

Plöntuafurðir

  • Baunir og linsur
  • Sojavörur (sojamjólk, tófú, sojajógúrt, kjötlíki o.fl.)
  • Hnetur og fræ
  • Heilkorn